Erlent

Obama og Medvedev spjölluðu saman í síma

Þeir Barack Obama forseti Bandaríkjanna og kollegi hans í Rússlandi, Dimitri Medvedev ræddu saman í síma í gær. Í samtalinu kom fram vilji beggja til þess að lappa upp á samskipti ríkjanna sem farið hafa versnandi undanfarin misseri.

Utanríkisráðherra Rússlands sagði einig í dag að hann búist við því að tvíhliða viðræður leiðtoganna fari fram í London í apríl á sama tíma og 20 stærstu iðnríki heims funda.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×