Erlent

Áttburamóðir átti sex börn fyrir

Dr. Mandhir Gupta tók á móti börnunum.
Dr. Mandhir Gupta tók á móti börnunum.
Kona sem fæddi áttbura á sjúkrahúsi í Kaliforníu á dögunum átti sex börn fyrir.

Börnin átta voru tekin með keisaraskurði á mánudaginn, níu vikum fyrir tímann. 46 læknar, hjúkrunarfræðingar og aðstoðarmenn tóku á móti börnunum á fimm mínútum. Allt fram að fæðingunni var talið að börnin væru sjö, og það áttunda kom læknum og foreldrum því í opna skjöldu.

Móðirin bað lækna um að halda nafni sínu leyndu, en einn ættingi hennar lak upplýsingum um hana í fjölmiðla, sem náðu í kjölfarið sambandi við foreldra hennar.

Þeir sögðu dótturina þegar eiga sex börn, og að hún hefði aldrei búist við því að frjósemismeðferð sem hún fór í endaði með áttburum. Móðir hennar sagði dóttur sinnar bíða ærið verk að ala upp fjórtán börn. Faðir barnanna er verktaki, og er á leið aftur til Íraks þar sem hann hefur starfað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×