Atvinnuleysisklúbbar spretta upp í Bandaríkjunum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. mars 2009 08:28 Klúbbastarfið í fullum gangi. MYND/Reuters
Tom Skidmore í Kansas missti vinnuna í desember og er svo sem ekkert einn um það. Hann hefur hins vegar fyrir fimm manna fjölskyldu að sjá og er því ekkert á því að sitja með hendur í skauti. Þess vegna skráði hann sig í eins konar klúbb atvinnulausra. Slíkir klúbbar hafa margþætt hlutverk. Þeir halda utan um hópefli atvinnulausra, eru félagsskapur, hafa allar klær úti við að krækja í vinnu handa félögum sínum og taka í sameiningu á tilfinningunni sem fylgir því að fá höfnunarbréf þegar sótt er um starf. Allt frekar uppbyggilegt enda hefur brúnin lyfst aðeins á Tom þótt hann sé enn atvinnulaus. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira í Bandaríkjunum síðan árið 1992 svo ekki er vanþörf á því að atvinnulausir hittist og fari yfir stöðuna í stað þess að híma hver í sínu horni. Ekki skemmir að félagsfræðingur við Kaliforníuháskóla segir allt benda til þess að slíkir klúbbar hjálpi mörgum við að komast í tengsl við vinnuveitendur sem eru að leita að fólki og veiti jafnvel góða undirstöðuþjálfun fyrir atvinnuviðtöl. Sem sagt, ekki hanga bara heima í kvíðakasti, það borgar sig aldrei.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Sjá meira