Guantánamo lokað innan árs 22. janúar 2009 06:45 Samkvæmt venju var eitt fyrsta verk Obama í embætti að mæta í bænastund ásamt Joe Biden varaforseta, eiginkonum þeirra beggja og Bill og Hillary Clinton.fréttablaðið/AP
Fyrsti dagur Baracks Obama í embætti Bandaríkjaforseta var annasamur. Hann kallaði saman helstu ráðgjafa sína í bæði efnahagsmálum og hermálum til að fjalla um þau erfiðu verkefni, sem blasa við strax í byrjun embættistíðar hans. Fyrsta ákvörðun Obama í embætti var reyndar tekin strax á þriðjudaginn, þegar hann bað dómara í sérdómstólum Bandaríkjahers á Kúbu um að fresta öllum réttarhöldum yfir föngunum í herstöð Bandaríkjanna við Guantánamo-flóa í 120 daga. Sá tími verður væntanlega notaður til að koma málefnum þessara fanga í aðra farvegi. Frestunin „hefur í raun þau áhrif að stöðva réttarhöldin, líklega fyrir fullt og allt“, sagði William Kuebler, lögmaður eins fanganna. Aðstandendur sumra fórnarlamba hryðjuverkanna 11. september sögðust andvígir allri frestun á réttarhöldunum, en mannréttindasamtök fögnuðu þessu. Í gær bárust síðan fréttir af því að Obama hefði í hyggju að loka þessum umdeildu fangabúðum innan árs. Strax í gærmorgun hringdi Obama í Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, til að lýsa yfir eindregnum vilja sínum til að vinna að friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Síðar um daginn hringdi hann í Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, í sömu erindagjörðum.- gb
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Sjá meira