Úkraínustjórn fagnar sigri 22. janúar 2009 04:00 Tæknimaður í Rússlandi fylgist með pípunum.
Úkraínustjórn fagnaði í gær sigri á Rússum í gasdeilunni, sem varð til þess að skrúfað var fyrir gas til Evrópuríkja í tvær vikur. Júlía Tímósjenkó, forsætisráðherra Úkraínu, segir að náðst hafi mjög hagstæðir samningar við Rússa. Rússar náðu því fram að gasverð til Úkraínu hækkar nokkuð, en á móti fá Úkraínumenn hærri greiðslur fyrir flutning á gasi til Evrópuríkja um gasleiðslur landsins. „Það er mjög erfitt að fagna því sem aldrei hefði átt að gerast,“ sagði hins vegar José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á þriðjudag þegar gas tók að streyma til Evrópusambandsríkja frá Rússlandi í gegnum leiðslur Úkraínu. Hann segir gasskortinn síðustu tvær vikurnar sýna að Evrópusambandið verði að fjárfesta í eigin orkuöryggi. Ekki sé hægt að treysta Úkraínumönnum til að koma gasinu til skila. Sum þeirra Evrópuríkja, sem bjuggu við gasskort meðan Úkraínumenn og Rússar deildu, hafa hótað lögsókn gegn báðum löndunum til að fá skaðabætur. Um fjórðungur af því gasi, sem notaður er í Evrópusambandsríkjum, kemur frá Rússlandi, og um 80 prósent af gasinu frá Rússlandi berst í gegnum úkraínskar gasleiðslur.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira