Innlent

Starfsgreinasambandið kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, kallar eftir aðgerðum stjórnvalda. Mynd/ Hari.
Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, kallar eftir aðgerðum stjórnvalda. Mynd/ Hari.

Stöðugleikasáttmáli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins var ekki undirritaður upp á grín, segir Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins í nýjum pistli á vef sambandsins. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins leggur á það ríka áherslu að nú þurfi að koma verkefnunum af stað.

Þegar á eftir áætlun

„Það dugar ekki að ríkisstjórnin dragi lappirnar og að einstaka ráðherrar horfi til búskaparhátta frá miðri síðustu öld og þvælist fyrir mikilvægum nútíma framkvæmdum sem þegar eru á borðinu. Í Stöðugleikasáttmálanum undirgengst ríkisstjórnin að greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda s.s. framkvæmda vegna álvers í Helguvík og Straumsvík, að hraða undirbúningsvinnu vegna áforma sem tengjast meðalstórum iðnaðarkostum eins og gagnaverum og kísilflöguframleiðslu og að engar hindranir verði í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember n.k. Ljúka átti viðræðum ríkisstjórnar og lífeyrissjóða um að þeir fjármagni stórar framkvæmdir fyrir 1. september 2009. Sá dagur er liðinn og framkvæmdir til að stuðla að aukinni atvinnu ekki sýnilegar. Það eykur svo enn á vanda heimilanna," segir Skúli í pistlinum.

Ríkisstjórnin sinnir ekki vanda heimilanna

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins bendir á að ómarkvissar og seinvirkar aðgerðir af hálfu ríkisvaldsins skili litlum sem engum árangri. Segir í pistlinum að þeim vinnubrögðum verði að breyta og það geti ríkisstjórnin hæglega gert. Vandi heimilanna vaxi hröðum skrefum og staða þeirra sem komnir eru í greiðsluvanda fari versnandi. Örvænting blasi víða við. Undanfarna mánuði hafi þessi aðkallandi vandi fengið litla athygli stjórnvalda. Það sé óásættanlegt og ekki í samræmi við Stöðugleikasáttmálann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×