Fyrsti trúðurinn farinn út í geiminn 1. október 2009 04:15 Stofnandi Sólarsirkussins ætlar að dveljast í alþjóðlegu geimstöðinni næstu vikurnar.fréttablaðið/AP
Kanadískur sirkuseigandi slóst í hópinn með bandarískum og rússneskum geimfara sem skotið var út í geiminn frá gresjunum í Kasakstan í gær. Guy Laliberte er sagður fyrsti sirkustrúðurinn sem kemst út í geiminn. Hann stofnaði ásamt félögum sínum hinn víðfræga Sólarsirkus í Kanada fyrir aldarfjórðungi. Hann þurfti að borga fyrir farið, heilar 35 milljónir Bandaríkjadala, en það samsvarar nærri 4,4 milljörðum króna. Hann hefur efnast vel á rekstri Sólarsirkussins, sem heldur reglulega glæsisýningar víðs vegar um heim. Hann er talinn eiga 2,5 milljarða dala og er skráður eigandi að 95 prósentum í sirkusnum. Með honum í geimflauginni, sem skotið var upp frá Kasakstan í gær, eru geimfararnir Jeffrey Williams og Maxim Surajev, en þeir eru bara í vinnunni sinni og fá borguð laun fyrir. Lalibert hefur ítrekað að hann ætli að sæta færis og kitla ferðafélaga sína meðan þeir sofa. Hann ætlar að snúa aftur til jarðar eftir tólf daga dvöl í geimnum, en þeir Williams og Surajev búast við að dveljast ytra í 169 daga. Williams er að fara út í geiminn í þriðja sinn.- gb
Mest lesið Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Innlent Fleiri fréttir Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Sjá meira