Bandarískur ofurhermaður uppspuni frá rótum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. júní 2009 07:30 „Rick Duncan“ sem reyndist vera lygasjúklingurinn Richard Strandlof. MYND/CNN
Meint stríðshetja úr bandaríska sjóhernum sem farið hefur sigurför um Bandaríkin reyndist þegar upp var staðið aldrei hafa útskrifast úr herskóla. Rick Duncan er enginn venjulegur hermaður. Hann lifði naumlega af árás hryðjuverkamanna á bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon 11. september 2001. Því næst rétt komst hann af á lífi þegar vegasprengja sprakk við hlið hans í Írak. Hann er með stálplötu í höfðinu eftir þann atburð. Hann hefur ferðast víða um Bandaríkin, komið fram við hlið stjórnmálamanna og sagt sögu sína á samkomum fyrrum hermanna. Rick Duncan heitir þó alls ekki Rick Duncan. Hann heitir Richard Strandlof. Hann var í gistiskýli fyrir heimilislausa í San Jose 11. september og horfði með skelfingu á atburðina í sjónvarpi eins og margir Íslendingar hér heima, hann hefur aldrei komið til Írak né verið í hernum. Hann hóf hins vegar herþjálfun á sínum tíma en hætti henni fljótlega. Það er bara spurning um stálplötuna. Strandlof er haldinn ólæknandi lygaáráttu og á greinilega auðvelt með að hljóma býsna sannfærandi. Hann blekkti þúsundir ef ekki tugþúsundir Bandaríkjamanna í ansi langan tíma en segir nú CNN að hann sjái eftir öllu saman. Talsmenn hersins eru ekki beint ánægðir eins og gefur að skilja og segja Strandlof með tiltæki sínu ræna fjölda hermanna trúverðugleika sínum.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira