Nýjustu heimsendaspár miðast við 2012 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. janúar 2009 07:29 MYND/Ancientx.com
Framsýnir menn munu sleppa jólagjafakaupunum eftir fjögur ár því nú þykir margt benda til þess að heimsendir verði rétt fyrir jólin 2012, nánar tiltekið 21. desember. Reyndar er það ekki margt sem bendir til þess heldur einkum eitt, þessi dagur markar endalok hinnar svokölluðu löngu talningar Maya-þjóðflokksins en hún er nokkurs konar almanak sem spannar 5.126 ár. Margir freistast til að ætla, að fyrst tímatal Maya endar á þessum tímapunkti hljóti allt annað að enda um leið. Fyrst Mayar byggðu glæstar borgir fyrir mörg þúsund árum sem enn standa og spáðu auk þess mikið í stjörnufræði hafi þeir varla verið neinir aukvisar og þarna hafi þeir reiknað út heimsendi. Þá lenda jörðin, sólin og miðja Vetrarbrautarinnar í beinni línu árið 2012 sem af einhverjum ástæðum þykir ískyggilegt. Vinsæl kenning er að pólskipti verði 2012 en þau fela í sér viðsnúning á segulsviðum jarðarinnar og tortímingu alls lífs. Þetta tvennt er þó ekki vatnshelt. Jörðin, sólin og vetrarbrautarmiðjan raða sér í línu tvisvar á ári og hafa hingað til ekki drepið neinn með því. Hugtakið pólskipti hljómar nógu skuggalega en reyndin er sú að pólskipti hafa oft orðið án þess að allt líf þurrkist út, síðast gerðist það fyrir 800.000 árum. Kannski er því óhætt að kaupa jólagjafirnar árið 2012, hver veit?
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira