Efnahagslægðin verður hugsanlega dýpri 15. febrúar 2009 12:43 Fjármálaráðherrar G7 ríkjanna, helstu iðnríkja heims, funduðu í Rómarborg um helgina. MYND/AP
Óttast er að efnahagslægðin sem nú gengur yfir heiminn verði mun dýpri en áður hefur verið spáð. Verulega hefur dregið úr eftirspurn og neyslu á síðustu mánuðum og allt bendir til þess að framundan sé tímabil verðhjöðnunar verði ekkert að gert. Fjármálaráðherrar G7 ríkjanna, helstu iðnríkja heims, funduðu í Rómarborg um helgina. Ráðherrarnir ræddu meðal annars mögulegar aðgerðir til að fá hjól efnahagslífsins og heimsmarkaðarins til að snúast á ný. Verulega hefur dregið úr eftirpurn á síðastliðnum mánuðum. Þrátt fyrir að fjölmörg ríki hafi beinlínis dælt peningum inn í bankakerfið hafa bankarnir dregið verulega úr útlánum. Stýrivextir hafa verið lækkaðir til að örva efnahagslífið en hingað til hefur það ekki borið árangur. Nú er svo komið að svigrúm til frekari stýrivaxtalækkunar er ekki til staðar. Stýrivextir í Bandaríkjunum og Japan eru nánast komnir niður í núll og á Evrusvæðinu eru stýrivextir 2 prósent. Fastlega er búist við því að þeir verða lækkaðir niður í 1,5 prósent við næstu stýrivaxtaákvörðun. Haldi eftirpurn áfram að dragast saman er ekki útilokað að við taki tímabil verðhjöðnunar. Neytendur bíða með að kaupa vörur þar sem þeir búist við því að hún muni lækka frekar. Á fundi fjármálaráðherra G7 ríkjanna voru ræddir leiðir til að koma í veg fyrir þessa þróun. Meðal þess sem kemur til greina er hreinlega að prenta peninga og dæla þeim inn í hagkerfið. Önnur leið sem sem er talin líklegri er að bankar kaupi eignir og auki þannig flæði fjármagns. Í yfirlýsingu sem ráðherrarnir sendu frá sér að fundi loknum í gær kemur fram að ríkin ætli sér að efla samstarf við að auka hagvöxt og berjast gegn fjármálakreppunni í heiminum.
Tengdar fréttir Bankarnir best komnir í höndum einkaaðila Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir að bönkum og öðrum fjármálastofnunum sé best komið í höndum einkaaðila. Darling var spurður um málið á blaðamannfundi í tengslum við fund fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims funda í Róm á Ítalíu, en orðrómur hefur verið upp um að LLoyds bankinn verði þjóðnýttur. Bankinn tapaði allt að 8,5 milljörðum punda á seinasta ári. Darling sagði jafnframt ekki stæði til að funda með forystumönnum bankans um helgina. 14. febrúar 2009 15:19 Þjóðverjar hvetja til aðgerða gegn kreppunni Þjóðverjar hvetja nú stærstu iðnríki heims til að grípa strax til aðgerða gegn efnahagskreppunni. Fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims funda nú í Róm á Ítalíu. 14. febrúar 2009 13:27 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira
Bankarnir best komnir í höndum einkaaðila Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir að bönkum og öðrum fjármálastofnunum sé best komið í höndum einkaaðila. Darling var spurður um málið á blaðamannfundi í tengslum við fund fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims funda í Róm á Ítalíu, en orðrómur hefur verið upp um að LLoyds bankinn verði þjóðnýttur. Bankinn tapaði allt að 8,5 milljörðum punda á seinasta ári. Darling sagði jafnframt ekki stæði til að funda með forystumönnum bankans um helgina. 14. febrúar 2009 15:19
Þjóðverjar hvetja til aðgerða gegn kreppunni Þjóðverjar hvetja nú stærstu iðnríki heims til að grípa strax til aðgerða gegn efnahagskreppunni. Fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims funda nú í Róm á Ítalíu. 14. febrúar 2009 13:27