Erlent

Mættu með fallbyssukúlu í skólann

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fótur og fit varð uppi í barnaskóla í borginni Naha á japönsku eyjunni Okinawa þegar tveir tólf ára drengir mættu sallarólegir með ósprungna 90 millimetra fallbyssukúlu í skólann í fyrradag.

Við athugun kom í ljós að kúlan er af bandarískum uppruna og hafði legið grunnt í jörðu um 100 metra frá skólanum síðan á dögum seinni heimsstyrjaldarinnar. Lögreglumenn komu á staðinn og fluttu gripinn varlega á brott til eyðingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×