Erlent

Telja sig hafa náð raðmorðingjanum

Lögreglan sendi frá sér teikningu sem byggð var á framburði vitna.
Lögreglan sendi frá sér teikningu sem byggð var á framburði vitna.
Lögregla telur að innbrotsþjófur sem skotinn var og drepinn af lögreglu í Norður-Karólínu fylki í dag sé raðmorðinginn sem leitað er að vegna fimm morða í Suður-Karólínu. Maðurinn var skotinn af lögreglu þegar hann reyndi að brjótast inn á heimili í Gastonia en það er einungis tæpum 50 kílómetrum frá Gaffney þar sem morðin áttu sér stað.

Lögreglan í Suður-Karólínu fullyrðir að raðmorðinginn hafi verið þarna á ferð. „Fólk getur andað örlítið léttar núna," sagði talsmaður lögreglu við fjölmiðla.

Nafn morðingjans verður gefið upp síðar í kvöld en rannsóknir á byssukúlum benda meðal annars til að þetta sé raðmorðinginn.

Lögregla var kölluð að húsi í Gastonia í dag vegna innbrots. Þegar hún mætti á staðinn vildi maðurinn fyrst um sinn ekki segja lögregluþjónum sitt rétta nafn. Þegar lögregla reyndi að handtaka manninn hóf hann að skjóta að lögreglu sem svaraði í sömu mynt og náði að drepa hann. Hann náði þó að hæfa einn lögreglumann með skoti í fótlegg. Búist er við að lögreglumaðurinn jafni sig á þeim meiðslum.

Fjöldamorðin hafa valdið ógnarskelfingu í Suður-Karólínu frá því þau hófust þann 27. júní síðastliðinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×