Innlent

Bílþjófur handtekinn í Laugardal

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Laugardal í gærkvöld vegna bílþjófnaðar. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Bílnum var stolið í Kópavogi fyrr um daginn.

Þegar bíllinn fannst voru í honum ýmsir munir sem réttmætur eigandi bílsins kannaðist ekkert við þegar hann fékk ökutækið aftur í sínar hendur. Lögreglan telur að þessir munir hafi verið illa fengnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×