Erlent

Líklegt að vélin hafi orðið fyrir eldingu

Talið er að farþegaflugvél með 228 manns innanborðs sem var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar hafi orðið fyrir eldingu en allt fjarskiptasamband slitnaði við vélina í nótt. Leit er nú hafin að vélinni við litla eyju við stendur Brasilíu.

„Við höfum ekki fengið neinar fréttir af flugi AF 447," segir Brigiette Barrand talsmaður Air France nú í morgun.

Innanborðs voru 228, 216 farþegar og 12 manna áhöfn. Þar af voru 126 karlmenn, 82 konur, sjö börn og eitt ungabarn. Um borð voru níu starfsmenn og þrír flugmenn að sögn flugfélagsins.

Klukkustund eftir að vélin fór á loft tilkynntu flugmenn um mikla vinda og „mikla ókyrrð" sagði talsmaður flugfélagins. Tíu mínútum síðar hvarf vélin síðan af ratar.






Tengdar fréttir

Farþegavél með 228 farþega hvarf yfir Atlantshafi

Farþegaflugvél með 228 farþega innaborðs frá franska flugfélaginu Air France er saknað eftir að hún hvarf yfir Atlantshafinu. Vélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var á leið til París. Samkvæmt flugmálayfirvöldum á Charles de Gaulle flugvellinum í París misstu þeir samband við vélina um sex leytið í morgun. Það er BBC sem greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×