Erlent

Heitar umræður um staðsetningu Eurovision

Sigurvegarinn norsk-hvít-rússneski.
Sigurvegarinn norsk-hvít-rússneski.

Þegar eru byrjaðar heitar umræður í Noregi um það hvar eigi að halda Eurovision-keppnina eftir eitt ár, enda Norðmenn gestgjafar eftir sigurinn um helgina. Þegar er farið að tala um að valið standi á milli Óslóar, Stafangurs, Björgvinjar og jafnvel Tromsö. Vegna mikillar undirbúningsvinnu segir menntamálaráðherra Noregs að ákvörðun þurfi að liggja fyrir sem allra fyrst. Nokkur þúsund manns höfðu safnast saman í flugstöðvarbyggingunni við Gardermoen-flugvöll þegar norsku listamennirnir komu þangað frá Moskvu í gær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×