Erlent

Meira en 5.700 hafa látist vegna svínaflensu

Svínaflensan er í hámarki víða í heiminum.
Svínaflensan er í hámarki víða í heiminum.
Meira en 5.700 manns hafa látist af völdum svínaflensu (H1N1) í heiminum síðan hún braust út í apríl á þessu ári. Flensan hefur greinilega náð hámarki víðar en á Íslandi því yfirvöld í Úkraínu báðu í dag ríki heimsins um hjálp í baráttu sinni við flensuna. Í liðinni viku hafa um 60 manns látist í landinu.

Hér á landi hafa aldrei fleiri legið á sjúkrahúsi vegna flensunnar en 45 sjúklingar eru á Landspítalanum og þar af 11 á gjörgæslu. Svínaflensan er einnig skæð í Bandaríkjunum því hún hefur nú greinst í 48 ríkjum, sem er tveimur meira en var í síðustu viku.

Þrátt fyrir að hin hefðbundna haustflensa sé að ganga þar eins og annarsstaðar hefur Svínaflensan tekið sinn toll. 114 bandarísk börn og unglingar hafa látist í landinu vegna flensunnar síðan í apríl. 19 af þessum dauðsföllum urðu í síðustu viku.

Tveir þriðji þessara barna og unglinga þjáðust af undirliggjandi sjúkdómum. Í venjulegum flensufaraldri deyja að meðaltali 40-50 manns í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×