Enski boltinn

Pavlyuchenko ánægður hjá Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roman Pavlyuchenko í leik með Tottenham.
Roman Pavlyuchenko í leik með Tottenham. Nordic Photos / Getty Images

Roman Pavlyuchenko segist vera ánægður í herbúðum Tottenham en orðrómur hefur verið á kreiki um að hann vilji fara frá félaginu.

Pavlyuchenko hefur skorað þrettán mörk síðan hann kom til félagsins frá Spartak Moskvu í september síðastliðnum.

„Ég tek ekkert mark á þeim sem halda fram að ferli mínum hjá Tottenham sé lokið," sagði hann í samtali við enska fjölmiðla.

„Allir þurfa að sitja á bekknum einhvern tímann, líka bestu leikmenn heims. Það eru aðeins þeir sem ekki gefast upp sem komast aftur í liðið," bætti hann við en Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur kosið að tefla þeim Robbie Keane og Darren Bent saman í sóknarlínu Tottenham.

„Ég ætla mér að leggja hart að mér og komast aftur í byrjunarliðið. Stuðningsmenn Tottenham þurfa ekkert að efast um það."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×