Erlent

Fundu vatn á tunglinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geimvísindamenn á vegum NASA hafa fundið vatn á tunglinu og telja að það muni gera þeim kleyft að opna geimstöð þar. Það var Anthony Colaprete, sérfræðingur í geimvísindum, sem tilkynnti þetta í dag, eftir því sem fram kemur á vef CNN.

„Ég er hérna í dag til að tilkynna ykkur að við höfum fundið vatn," sagði Colaprete á fjölmiðlafundi í dag. Hann bætti því við að talsvert magn af vatni hefði fundist.

Sérfræðingar hjá NASA segja að upplýsingarnar breyti töluvert skilningi þeirra og þekkingu á tunglinu. Michael Wargo, yfirmaður tunglrannsókna hjá NASA, segir jafnframt að uppgötvunin gæti orðið til þess að auka skilning á sólkerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×