Jón Ólafsson krefur breska ríkið um tugmilljóna bætur 8. júlí 2009 06:00 „
Ég tók þá ákvörðun að það væri ekki lengur þess virði að sækja málið á Hannes Hólmstein. Ég er búinn að vinna málið fyrir dómstólum í Englandi sem klikka vegna tæknilegs atriðis. Eins er þríeykið Davíð Oddsson, Kjartan Gunnarsson [fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins] og Hannes liggjandi menn. Maður sparkar ekki í liggjandi menn," segir Jón Ólafsson athafnamaður. Jón hefur stefnt breska ríkinu vegna mistaka breska sendiráðsins á Íslandi í tengslum við meiðyrðamál hans gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor við Háskóla Íslands, árið 2004. Jón krefst allt að sjötíu milljóna króna. Jón höfðaði meiðyrðamál fyrir breskum dómstólum árið 2004 vegna ummæla Hannesar haustið 1999 sem voru vistuð á vefsvæði Hannesar hjá Háskóla Íslands. Þar vændi Hannes Jón meðal annars um að hafa efnast á glæpastarfsemi. Jón gat sýnt fram á það fyrir dómi að hann hefði orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna skrifa Hannesar. Dómur féll sumarið 2005 þar sem Hannes var dæmdur til að greiða Jóni tæplega tuttugu milljónir króna að núvirði í bætur og málskostnað. Hannes áfrýjaði þessum dómi til yfirréttar í London, sem ógilti í desember 2006 dóm undirréttar með þeim rökum að stefna í málinu hefði ekki verið birt Hannesi samkvæmt íslenskum lögum. Hannes mótmælti því jafnframt að dómurinn yrði fullnustaður hér á landi en að kröfu Jóns gerði sýslumaðurinn í Reykjavík fjárnám fyrir dómkröfunni í skuldabréfi sem Hannes hafði fengið vegna sölu á húseign sinni. Jón segir ekkert að sækja til Hannesar, sem hafi selt hús sitt „í skjóli nætur". „Nú er ljóst að breska ríkið er ábyrgt fyrir þessu og þess vegna fer ég í mál til að endurheimta sextíu til sjötíu milljónir króna sem er málskostnaður og það sem Hannes var dæmdur til að borga." Jón segir að yfirvöld ytra hafi viðurkennt mistök sín í meðferð málsins og málið snúist um hvort yfirvöldum beri að borga alla upphæðina sem Jón fer fram á eða aðeins hluta hennar. Hann er bjartsýnn á að niðurstaða fáist í málið fyrir áramót.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira