Bandarískur jarðfræðingur segist hafa fundið bin Laden Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2009 08:11 Osama bin Laden. MYND/AP
Málið er leyst, bin Laden er í felum í litlu þorpi í Norðvestur-Pakistan. Það er þó hvorki CIA, FBI né bandaríska þjóðaröryggisstofnunin sem slær þessu fram. Það er Thomas Gillespie, prófessor í jarðfræði við Kaliforníuháskólann í Los Angeles, en hann hefur byggt reiknilíkan sem notað er til að kortleggja ferðir dýrategunda í útrýmingarhættu og beitir því hiklaust á feluhegðun al Qaeda-foringjans illræmda. Þetta er kannski ekki alveg út í hött, bin Laden hlýtur að teljast í töluverðri útrýmingarhættu enda frekar umdeildur náungi. Gillespie heldur því fram að þetta sé í fyrsta sinn sem vísindalegri aðferð sé beitt við að hafa upp á bin Laden en njósnaaðferðir bandarískra yfirvalda hafa verið atkvæðameiri fram að þessu. Prófessorinn hefur mikla trú á reiknilíkani sínu og gefur upp þrjá mögulega felustaði bin Ladens en vinninginn í líkindum hefur þorpið Parachinar í Norðvestur-Pakistan. Það er tiltölulega skammt frá þeim stað þar sem síðast er talið að sést hafi til bin Ladens auk þess sem það var algengur felustaður uppreisnarmanna í stríði Afgana og Sovétmanna. Það skyldi þó aldrei fara svo að lokum að hópur jarðfræðinga fletti ofan af al Qaeda?
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira