Erlent

Mikilvægt að taka Tamiflu þrátt fyrir að veiran hafi stökkbreyst.

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Heilbrigðisyfirvöld í Osló hafa ítrekað hvatningu sína til Norðmanna um að þeir taki inn Tamiflu, þrátt fyrir að í gær hafi fundist stökkbreytt veira þar í landi.

Bjørn-Inge Larsen, sem er nokkurskonar landlæknir í Noregi, segir að það sé mun mikilvægara en áður að taka Tamiflu ef menn veikist. Taki fólk Tamiflu dragi það úr líkum á því að veiran stökkbreytist, segir hann.

„Ef maður notar Tamiflu ber maður veiruna mun skemur og þar með eru minni líkur á því að hún stökkbreytist," segir Larsen.

Fréttavefur DR greindi frá.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×