Enski boltinn

O'Neill: Gott að fá Celtic og Rangers í ensku deildina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin O'Neill, stjóri Aston Villa.
Martin O'Neill, stjóri Aston Villa. Mynd/GettyImages

Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, segir að enska úrvalsdeildin myndi græða á því ef skosku liðin Celtic og Rangers fengju að vera með.

Það hefur verið í umræðunni að undanförnu að tvö langsigursælustu lið Skotlands fái tækifæri til að spila í ensku úrvalsdeildinni og málið verður væntanlega rætt á aðalfundi stjórnar ensku úrvalsdeildarinnar í júní.

O'Neill stýrði Celtic í fimm ár en hætti með liðið árið 2005 og skellti sér yfir í ensku úrvalsdeildina. Nú vill hann að Celtic og Rangers komi sömu leið.

„Mitt persónulega mat er að Celtic og Rangers myndu bæta ensku deildina," sagði O'Neill og hann er vissu að aðsókn myndi aukast hjá liðunum.

„Ég er ekki viss um Rangers en aðsóknin hjá Celtic myndi fara úr 60 þúsund upp í 80 þúsund á einni nóttu," sagði O'Neill sem gerir sér þó grein fyrir að þetta sé flókið ferli sem kalli á margar spurningar.

„Auðvitað gætu í framhaldinu belgísk lið viljað fá að vera með í hollensku deildinni og bestu hollensku liðin sóst eftir því að spila í Þýskalandi," sagði O'Neill í léttum tón. „Það þarf að fara vel yfir þetta mál en ég styð samt þessa breytingu," sagði hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×