Óttast fyrirætlanir Norður-Kóreu Guðjón Helgason skrifar 24. febrúar 2009 12:11 Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu.
Norður-Kóreumenn ætla að skjóta gervihnetti á sporbaug um jörðu. Þetta tilkynntu ráðamenn í Pjongjang í morgun. Nágrannaríki Norður-Kóreu og vesturveldin óttast að ekki verði um gervihnött að ræða þegar að skotinu kemur heldur prófanir á langdrægri eldflaug. Norður-Kóreumenn gefa ekki upp hvenær eldflauginni verði skotið á loft en hún muni bera gervihnött sem fari á sporbaug um jörðu. Sérfræðingar telja hins vegar afar líklegt að hér verði um allt aðra prófun að ræða. Skotið verði á loft langdrægri eldflaug sem dragi nærri sjö þúsund kílómetra en þannig yrði hægt að beina henni að Alaska. Norður-Kóreumenn léku þennan leik 1998 þegar þeir skutu eldflaug af gerðinni Taepodong eitt á loft en sú var öllu skammdrægari. Þá var því haldið fram að það væri gert til að koma gervihnetti á sporbaug um jörðu. Í júlí 2006 var langdrægri eldflaug af gerðinni Taepodong tvö skotið á loft en það eldflaugaskot misheppnaðist. Flaugi sprakk skömmu eftir að hún fór á loft. Ráðamenn í Suður-Kóreu, Japan og Bandaríkjunum hafa ráðið NorðurKóreumönnum frá því að skjóta eldlfaugum á loft enda þeim bannað að nota nokkrar skotflaugar samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eftir að þeir sprengdu kjarnorkusprengju í tilraunaskyni í fyrsta sinn í október 2006. Norður-Kóreumenn fullyrða að eldflaugaskotið nú sé eingöngu til að styrja land og þjóð og þá með því að koma sér upp gervihnetti. Suður-Kóreumenn sem eru uggandi segja engu skipta hvort gervihnöttur eða eitthvað annað verði í eldflauginni, öll eldflaugaskot verði gegn ályktun ráðsins. Spenna hefur magnast milli kóreskra ráðamanna í norðri og suðri síðustu vikurnar eftir nokkra þíðu síðustu misseri sér í lagi eftir að Lee Myung-bak, forsætisráðherra Suður-Kóreu, setti batt áframhaldandi efnahagsaðstoð til nágrannanan í norðri framvindu í afvopnunarviðræðum. Þær viðræður um að Norður-Kóreumenn leggi kjarnorkuáætlun sína á hilluna hafa reyndar legið niðri og Hillary Clinton, nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir kjarnorkuáætlun Pyongyang mesta ógn við stöðugleika í norðaustur Asíu. Nýlega sögðu ráðamenn í Pyongyang, sem hafa rift fjölda samstarfssamninga við ráðamenn í Seoul, að þeir væru tilbúnir í stríð á Kóreuskaga. Strangt til tekið hafa Kóreu ríkin tvö verið í stríði frá Kóreustríðinu 1950 til 1953 þar sem þeim átökum hafi lokið með vopnahléi en ekki friðarsamningum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira