Erlent

Fljúgandi furðuský herja á Breta

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Vindskafið netjuský (altocumulus lenticularis).
Vindskafið netjuský (altocumulus lenticularis). MYND/Tagbanger.com

Margir Bretar hafa talið sig sjá geimför frá öðrum hnöttum undanfarna daga og hefur því jafnvel heyrst fleygt að dularfullt loftfar hafi rekist með ljósagangi og hávaða á vindmyllu í Lincolnskíri.

Hvað sem sagt verður um það atvik eru það að minnsta kosti ekki allt geimför sem sést hafa heldur sérkennileg disklaga ský, svokölluð vindskafin netjuský, sem verða til vegna bylgjumyndunar lofts þegar það fer yfir fjöll. Mörg fyrirbæranna hafa enda sést við strendur þar sem skammt er til fjalla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×