Erlent

Segir lokun Guantanamo auka líkur á árás

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Dick Cheney.
Dick Cheney.

Sú ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að loka fangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu gæti aukið líkurnar á hryðjuverkaárás á Bandaríkin til muna.

Þetta segir Dick Cheney, fyrrum varaforseti og bætir því við að ákvörðun Obama um að hverfa frá þeim yfirheyrsluaðferðum sem notaðar hafa verið sé ekkert gæfuspor heldur. Cheney er þeirrar skoðunar að aðgerðir fyrri stjórnar gegn hryðjuverkum hafi komið í veg fyrir að önnur árás, í líkingu við þá sem gerð var 11. september 2001, yrði framin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×