Segja Hamas myrða og pynta Palestínumenn Óli Tynes skrifar 29. janúar 2009 17:14 Grímuklæddir liðsmenn Hamas fara vítt og breitt um Gaza ströndina.
Palestinskur maður sakaði í dag Hamas samtökin um að hafa pyntað og myrt bróður sinn fyrir að gagnrýna samtökin opinberlega. Osama Atalla, sem var kennari, studdi Fatah samtök Mahmouds Abbas, forseta palestínumanna. Hamas samtökin hröktu Fatah frá Gaza ströndinni með vopnavaldi árið 2007. Sundurlyndi á Gaza Fjöldi manna á Gaza styður Fatah og oft hefur slegið í brýnu milli þeirra og vígamanna Hamas. Svo rammt hefur kveðið að þessu að palestínumenn hafa jafnvel flúið Gaza ströndina og leitað ásjár hjá Ísraelum. Bróðir Osama Atalla segir að grímuklæddir byssumenn Hamas hafi komið á heimili hans á þriðjudag og haft hann á brott með sér. Fjölskyldan fékk svo upphringingu frá sjúkrahúsi og var sagt að Osama lægi þar illa haldinn. Hann lést af sárum sínum. Hamas svaraði ekki Reuters Ísraelska dagblaðið Haaretz segir í dag að Hamas liðar hafi tekið tugi óbreyttra borgara af lífi meðan og eftir árás Ísraela á Gaza ströndina. Sumir þeirra tilheyrðu Fatah, aðrir ekki. Fólkið var sakað um samvinnu við Ísraela. Innanríkisráðherra Hamas svaraði ekki símhringingum Reuters fréttastofunnar sem vildu spyrja hann um örlög Osamas Atalla. Yfirmenn öryggissveita Hamas hafa sagt að þeir hafi handtekið tugi kvislinga að undanförnu, meðal annars fólk sem þeir segja að hafi unnið með Ísraelum.
Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro Sjá meira