Erlent

Obama ókyrrist

Obama Barack óttast efnahagslega hamfarir og lætur þingmenn Bandaríkjanna heyra það.
Obama Barack óttast efnahagslega hamfarir og lætur þingmenn Bandaríkjanna heyra það.

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum náði nýjum hæðum í janúar en þá töpuðust rétt tæp sex hundruð þúsund störf. Þar með hefur atvinnuleysi farið úr 4,9 prósentur fyrir ári síðan upp í 7,6 prósent. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið í Bandaríkjunum síðan árið 1992.

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama hefur þegar lagt fram frumvarp á Bandaríkjaþingi um að samykkja 900 milljarða dollara aðgerðarpakka í efnahagsmálum. Miklar tafir hafa orðið á afgreiðslu frumvarpsins og er Obama orðinn langþreyttur.

Á heimasíðu Time kemur fram að Obama hafi sagt það óafsakanlegt að að ekki skuli hafa verið brugðist við. Hann segir þær efnahagslegu ógnir sem Bandaríkjamenn standi frammi fyrir í dag, séu að breytast í hamfarir.

Alls eru 4,8 milljónir manna atvinnulausir í Bandaríkjunum en það hefur ekki gerst síðan árið 1967.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×