Bretar íhuga þriggja daga vinnuviku Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. janúar 2009 08:14 MYND/Aronline.co.uk
Bresk framleiðslufyrirtæki sjá nú fram á að stytta vinnuvikuna um tvo daga vegna mikils samdráttar í efnahagslífi landsins. Breska blaðið Independent greinir frá þessu og segir mörg fyrirtæki í bílaiðnaði til dæmis stefna að þessari breytingu. Stytting vinnuvikunnar þykir æskilegri leið en uppsagnir þar sem þetta gerir mörgum fyrirtækjum kleift að halda starfsfólkinu í stað þess að láta það fara alveg. Þriggja daga vika er ekki ný af nálinni í Bretlandi, ríkisstjórn Edwards Heath fyrirskipaði slíkt fyrirkomulag árið 1972 þegar efnahagur landsins var í krappri lægð. Þá fóru breskir námuverkamenn í sitt fyrsta verkfall í 50 ár þegar þeim var synjað um níu punda hækkun vikulauna og urðu 289 námur óstarfhæfar. Heath lýsti yfir neyðarástandi í landinu mánuði síðar og fyrirskipaði þriggja daga vinnuviku en þá höfðu 1,2 milljónir manna misst vinnuna og var tekið að skammta rafmagn í landinu yfir daginn. Þáverandi ríkisstjórn hrundi svo með brauki og bramli í febrúar 1974.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira