Mikil flóð á slóðum Vestur-Íslendinga 31. mars 2009 05:30 Umflotin hús í útjaðri bæjarins Fargo umflotin vatni og krapa. Venjulegur farvegur Rauðár er milli trjáraðanna sem liggja í sveig bak við húsin. fréttablaðið/ap
Gríðarmikið flóð í Rauðá (Red River) vestur í Bandaríkjunum ógnar nú þúsundum heimila í Norður-Dakóta, á slóðum þar sem stór hluti íbúanna er afkomendur norrænna landnema. Miklar sveiflur í hitastigi síðustu daga, gríðarmikil snjóalög og óvenju mikil úrkoma hafa lagst á eitt um að valda verri flóðum á þessum slóðum en mælst hafa í 112 ár. Fimmtán hundruð íbúar voru fluttir fyrir helgi úr húsum sínum í Bismarck, höfuðborg Norður-Dakóta, en hafa nú fengið að snúa aftur heim. Öllu ískyggilegra er ástandið í bænum Fargo, þar sem vatnshæðin hefur ekki mælst meiri síðan árið 1897. Hún var rúmlega tólf metrar í gær, en var þá í rénun frá því sem hún mældist mest um helgina. Óttast var í gær að flóðgarðar sem byggðir voru í hasti úr sandpokum myndu gefa sig í hríðinni sem spáð var að skylli á í dag. Í suðurhluta ríkisins var búist við allt að 30 sentimetra snjókomu. Þúsundir þjóðvarðliða frá Norður-Dakóta og nágrannaríkjunum Minnesota og Suður-Dakóta tóku þátt í að styrkja flóðgarða í kring um byggðina þar sem hættan var mest. Þyrlum var beitt til að hífa risasandsekki þangað sem mest þörf þótti á að styrkja varnargarðana. John Poul Martin, talsmaður veðurstofunnar, sagði hættuna mikla og að íbúar Fargo yrðu að vera undir það búnir að yfirgefa heimili sín. Í næstu viku á svo að hlýna aftur til muna sem skapar enn meiri hættu á skaðræðis hlákuflóðum. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira