Ár frá árásunum á Mumbai Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. nóvember 2009 07:17
Indverjar minnast þess nú að í dag er eitt ár liðið frá því að pakistanskir hryðjuverkamenn réðust á nokkur hótel í borginni Mumbai og urðu tæplega 200 manns að bana. Fáir íbúar Mumbai munu nokkurn tímann gleyma fjögurra daga umsátursástandi sem hófst með því að pakistanskir hryðjuverkamenn úr röðum samtakanna Lashkar-e-Taiba gerðu árás á brautarstöð og hótelin Taj Mahal og Oberoi Trident ásamt fleiri stöðum. Árásarmennirnir voru tíu og höfðu skipulagt ódæðið vandlega, til dæmis var ljóst að þeir gjörþekktu hvern krók og kima í hótelunum. Eftir umsátur sem varði á fjórða dag réðst sérsveit indverska hersins, Svörtu kettirnir, til inngöngu í Taj Mahal-hótelið og stráfelldi þá sem enn lifðu af hryðjuverkamönnunum utan einn, Mohammad Ajmal Kasab, en réttarhöld yfir honum standa enn og má hann búast við dauðadómi verði hann sekur fundinn. Hryðjuverkamennirnir einbeittu sér helst að því að drepa hótelgesti frá Vesturlöndum og var breski skipajöfurinn Andreas Liveras meðal fórnarlamba þeirra. Hann var skotinn til bana aðeins nokkrum mínútum eftir að hann lýsti ástandinu í beinni útsendingu breska ríkisútvarpsins BBC gegnum síma. Friðarviðræður Indverja og Pakistana hrundu eins og spilaborg eftir atburðinn og indverski forsætisráðherrann Manmohan Singh, sem nú er staddur í heimsókn í Bandaríkjunum, sagði að pakistönsk yfirvöld gætu gert mun meira til að koma lögum yfir þá skipuleggjendur árásarinnar sem enn ganga lausir.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Sjá meira