Vopna- og fíkniefnabirgðir hjá Vítisenglum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. febrúar 2009 07:31 MYND/AFP
Skotvopn, táragas og fíkniefni er meðal þess sem fundist hefur í umsvifamikilli húsleit dönsku lögreglunnar hjá nokkrum útibúum vélhjólasamtakanna Vítisengla í Danmörku. Ráðist var til inngöngu á tæplega 20 stöðum samtímis, jafnt í Kaupmannahöfn sem annars staðar í Danmörku, og urðu heimturnar slíkar að engu er líkara en Vítisenglarnir búi sig undir sjálf ragnarök Völuspár. Enginn skortur var á bareflum og hnífum af ýmsum stærðum og gerðum en auk þeirra höfðu englarnir birgt sig upp af skotvopnum, piparúða og táragasi. Auk leitar hjá Vítisenglunum sjálfum var farið inn í félagsheimili svokallaðra AK-81-samtaka sem eru eins konar stuðningssamtök en þau stunda væntanlegir Vítisenglafélagar sem enn eru að læra fagið. Námið virðist nokkuð stíft því hjá þeim félögum í AK-81 fannst heilmikið magn af amfetamíni og maríjúana auk hefðbundins vopnabúrs. Lögreglan segist hafa skipulagt aðgerðina í rúma viku og nú taki við heilmikil vinna við að telja og skrá allt góssið sem hald var lagt á. Þrír voru handteknir við aðgerðina og munu þeir væntanlega þurfa að gera grein fyrir meðal annars því hvaða heimsstyrjöld englar vítis hafi verið að búa sig undir með vopnasöfnuninni.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Sjá meira