Rússneski flugherinn meira og minna ónýtur Óli Tynes skrifar 6. febrúar 2009 11:33 MiG 29 orrustuþota.
Það eru um 650 orrustuþotur í rússneska flughernum. Þar af eru um 290 af gerðinni MiG 29. Þær eru taldar með bestu þotum flughersins þótt þær hafi verið hannaðar á sjöunda áratugnum. Rússneska viðskiptablaðið Kommersant hefur eftir heimildarmönnum innan hersins og varnarmálaráðuneytisins að 200 af MiG þotunum séu ónýtar. Þær geti ekki einusinni tekið á loft, hvað þá barist. Rússar settu flugbann á allan MiG flotann í desember síðastliðnum eftir að tvær þotur fórust með stuttu millibili. Haft er eftir hershöfðingja í flughernum að stélin hafi hreinlega fokið af vélunum á flugi vegna tæringar. Í kjölfarið hafi allar vélar af þessari gerð verið grandskoðaðar og komið í ljós að 200 þeirra væru hreinlega ónýtar. Sprengjuflugvélar Rússa eru einnig flestar eldgamlar og úr sér gengnar. Þetta er mikill álitshnekkir fyrir herveldið Rússland sem hefur verið að skekja spjót sín á nýjan leik undanfarin misseri. Þetta bætist ofaná að stærsta og öflugasta herskip Rússlands, flugmóðurskipið Pétur mikli fer ekki á sjó án þess að hafa með sér dráttarbáta, vegna tíðra bilana. Og þótt Rússar ynnu einhverskonar sigur í hinu stutta stríði í Georgíu þá var það eingöngu vegna þess að þeir tefldu fram ofurefli liðs. Stríðið leiddi nefnilega í ljós að ýmislegt er að hjá landhernum, bæði hvað snertir búnað og þjálfun.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Artemis II er á heimleið Erlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Sjá meira