Erlent

Fórust þegar flugvél hrapaði í Amazon

Frá Amazon fljótinu.
Frá Amazon fljótinu.

Tuttugu og fjórir fórust þegar að flugvél hrapaði í Amazon fljótið í Brasilíu. Björgunarmenn fundu lík hinna látnu í flugvélinni í dag. Á meðal hinna látnu voru sjö börn, níu konur og átta karlar. Fjórir björguðust í slysinu og á meðal þeirra var níu ára gamalt barn. Aðstandendur þeirra sem komust lífs af sögðu við fjölmiðla að einn af hreyflum vélarinnar hefði stöðvast og flugmaðurinn reynt nauðlendingu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×