Innlent

Gæslan í loftrýmiseftirlitið

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson

„Það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja Varnarmálastofnun niður í núverandi mynd og gert er ráð fyrir því að sú ákvörðun komi til fullnustu á næsta ári," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði í Fréttablaðinu í gær að stofnunin ætti að hætta um áramót og hann vildi leggja loftrýmisgæsluna niður.

Össur segist engar athugasemdir gera við skoðanir Árna Þórs og hann hafi fullt frelsi til að viðra þær. „Varðandi skoðanir hans á loftrýmisgæslu þá hefur engin ákvörðun verið tekin um það í ríkisstjórn að hætta við hana. Menn hafa einkum haft horn í síðu hennar vegna kostnaðar, en okkur hefur tekist að ná honum niður."

Ráðherra vísar í Stoltenberg-skýrsluna, þar sem lagðar eru fram hugmyndir um að Norðurlöndin sjái í sameiningu um loftrýmisgæsluna. Hann sjái fyrir sér að gerð verði tilraun með það. Þangað til það verði að veruleika hafi hann verið fylgjandi því að verulegir þættir í starfsemi Varnarmálastofnunar verði sameinaðir Landhelgisgæslunni. Össur segir að ekki sé komin dagsetning á það hvenær stofnunin verður lögð niður, en það verði á næsta ári.

Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, sagði í viðtali við RÚV í gærmorgun að hún teldi ekki koma til greina að hætta loftrýmisgæslunni, hún tilheyrði því að vera í Nató. Þá furðaði hún sig á ummælum Árna Þórs um að leggja ætti stofnunina niður. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ellisif síðdegis sagði hún að hún tjáði sig ekki um málið. Varnarmálastofnun heyrir undir utanríkisráðuneytið.

Þegar ummæli Ellisifjar voru borin undir Össur sagði hann: „Mér finnst það óviðeigandi að embættismenn lýsi furðu sinni á skoðunum stjórnmálamanna, hvar í flokki sem þeir standa."

Spurður hvort hann hefði komið þeirri skoðun sinni á framfæri við Ellisif sagði hann: „No comment."

Ríkisendurskoðun hefur tekið til rannsóknar kaup Varnarmálastofnunar á tæki og búnaði fyrir um 40 milljónir, án útboðs. Ellisif segist fagna því að málið sé til rannsóknar. Samkvæmt lögum séu þessi kaup undanþegin útboðsskyldu. „Við erum mjög ánægð með þessa úttekt og höfum unnið allt eftir bókinni."

Össur vildi ekki tjá sig um rannsóknina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×