Erlent

Tugir látast í kjarreldum í Ástralíu

Sjötíu og fimm hið minnsta hafa látið lífið í kjarreldum í Ástralíu um helgina. Margra er saknað. Heilu þorpin hafa fuðrað upp og eldarnir breiðst svo hratt út að fólk hefur varla haft tíma til að forða sér. Margir hinna látnu fundust í bílum sínum þar sem þeir höfðu reynt að flýja. Þetta eru mestu kjarreldar sem orðið hafa í Ástralíu í þrjá áratugi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×