Fæddi áttbura eins og að drekka vatn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. janúar 2009 08:15 Dr. Mandhir Gupta var mjög brugðið. MYND/CNN
Kona í Kaliforníu fæddi áttbura í gærmorgun og kom læknum, sem bjuggust við sjö börnum, í opna skjöldu. Sex sveinar og tvær meyjar bættust í hóp Kaliforníubúa á einu bretti eftir vel heppnaða keisaraskurðaðgerð á Keiser Permanente-sjúkrahúsinu í Bellflower í gær. Hópurinn er nokkuð brattur fyrir utan að þrjú systkinanna þurfa hjálp við öndun. Það er þó ekkert varanlegt að sögn lækna og má búast við að þar með séu fæddir fyrstu áttburar heims sem allir lifa. Kona í Houston í Texas eignaðist áttbura árið 1998 en einn þeirra dó skömmu eftir fæðinguna. Fæðingin í gær tók ekki nema um fimm mínútur en undirbúningurinn var þeim mun viðameiri. Alls komu 46 starfsmenn sjúkrahússins að því með einum eða öðrum hætti að búa móðurina og væntanleg afkvæmi undir stóra daginn. Það sem kom þó mest á óvart var leynigesturinn, áttunda barnið, en læknar töldu sig fullvissa um að þeir væru að taka á móti sjö börnum. Það mun þó ekki vera tekið út með sældinni að kasta réttri tölu á slíkan fjölda með hljóðsjá eina að vopni og gægðist því áttunda höfuðið óvænt út. Móðirin er gjörsamlega búin en heilsast vel.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira