Hátíðarstemmning vestanhafs Atli Steinn Guðmundsson skrifar 21. janúar 2009 07:56
Mikil hátíðarstemmning hefur ríkt í Bandaríkjunum síðan Barack Obama sór embættiseið sinn sem 44. forseti landsins að viðstöddu mannhafi í Washington í gær. Líklega hefur viðlíka mannfjöldi aldrei komið saman við þinghúsið bandaríska á Capitol Hill og í gær þegar ein og hálf milljón manna fylgdist með embættistöku Obama. Forsetinn nýi þakkaði þeim sem fórnuðu svo miklu til þess að sonur manns, sem hugsanlega hefði verið synjað um afgreiðslu á veitingahúsum fyrir 60 árum, stæði nú frammi fyrir þjóðinni og sværi hinn helgasta eið. Bandaríkjamenn fögnuðu á götum úti um gervallt landið, innblásnir nýrri von um breytingar og farsæld, og heillaóskirnar streymdu frá þjóðhöfðingjum og ríkisstjórnum annarra landa. Meðal annars lét Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti þau orð falla að Bandaríkin sýndu nú þann ásetning að verða ný, sterk og opin. Fyrstu klukkustundirnar í embætti höfðu Obama og Michelle, kona hans, í nógu að snúast og byrjuðu á að heimsækja tíu opinbera hátíðardansleiki sem haldnir voru í tilefni embættistökunnar. Meðal viðstaddra við embættistökuna voru leikararnir Dustin Hoffman og Denzel Washington auk leikstjórans Stevens Spielberg. Lögregla segir að engar handtökur tengdar athöfninni hafi átt sér stað sem út af fyrir sig er sögulegt ef miðað er við manngrúann sem fagnaði nýjum forseta Bandaríkjanna
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira