Mjaðmaaðgerðir kostnaðarsamar fyrir breska skattgreiðendur 25. september 2009 12:22
Einn af hverjum fimm Bretum, sem gengst undir mjaðmaaðgerð á breskum einkasjúkrahúsum og stofum, þarf á nýrri aðgerð eða viðgerð að halda, innan við þremur árum eftir aðgerð. Margar hinna síðari aðgerða eru framkvæmdar á opinberum sjúkrahúsum með miklum kostnaði fyrir breska skattgreiðendur. Fjallað er um mjaðmaaðgerðir á breskum einkasjúkrahúsum í dagblaðinu Times. Þar kemur fram að einn af hverjum fimm sem fara í mjaðmaskiptiaðgerðir á einkasjúkrahúsum eða stofum, þurfi að fara aftur í aðgerð, innan við þremur árum eftir upphaflegu aðgerðina. Ýmist þarf að að gera hlutina frá grunni, að sögn blaðsins, eða gera við. Þetta sé um það bil 20 sinnum hærra hlutfall en þekkist innan opinbera heilbrigðiskerfisins, þar sem innan við 1% sjúklinga þarf að fara í aðgerð að nýju. Einnig eru hnjáliðaaðgerðir nefndar í fréttinni, en þar þarf einn af hverjum tíu sem fer í aðgerð hjá einkaframtakinu að láta gera við. Oft er það svo, segir Times, að kostnaðurinn við seinni aðgerðina fellur á skattgreiðendur, því viðgerðin fer oft fram innan opinbera heilbrigðiskerfisins. Upphaflega hugmyndin var að auka val sjúklinga og draga úr biðtíma eftir aðgerðum. En fram kemur í fréttinni að þessar upplýsingar sýni þörfina fyrir að umbylta rándýru kerfi. Auka þurfi eftirlit til muna svo dæmi sé tekið. Í umræðu um einkasjúkrahús hérlendis, sem tækju við erlendum sjúklingum, hefur komið fram að komi eitthvað upp á, þyrfti heilbrigðiskerfið, sem kostað er af íslenskum skattgreiðendum að taka við. Þá bítast nú þrjú íslensk sveitarfélög, Mosfellsbær, Garður og Álftanes, um að fá til sín bandarískt einkasjúkrahús. Þar á að gera hnjáliða og mjaðmaskiptiaðgerðir. Hugmyndin er að framkvæmdir hefjist á næsta ári og starfsemin ári síðar. Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ sagði í fréttum Stöðvar tvö í gær að yfir 600 framtíðarstörf kynnu að skapast á sjúkrahúsinu; en það ætti að sinna á milli fjögur og sex þúsund sjúklingum á ári.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sjá meira