Erlent

Nautgripaþjófum vex fiskur um hrygg vestra

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þetta er ekki óalgeng sjón í bakgörðum venjulegra heimila í Alabama og víðar í Bandaríkjunum.
Þetta er ekki óalgeng sjón í bakgörðum venjulegra heimila í Alabama og víðar í Bandaríkjunum.

Þegar hjónin Chrissy og Benny Pinckard risu úr rekkju í smábæ nokkrum í Alabama fyrr í vor og fóru á stjá kom í ljós að tvö verðlaunanaut í eigu þeirra voru horfin.

Óprúttnir aðilar höfðu stolið blessuðum skepnunum í skjóli nætur. Nautgripa- og hrossaþjófnaður er eitthvað sem margir tengja án efa við villta vestrið og 19. aldar raunveruleika róstusamra Bandaríkja en nú er svo komið að þjófar renna ekki síður hýru auga til hvers kyns búpenings en rennilegra sportbifreiða.

Nautgriparækt og hvers kyns búskapur er nefnilega heilmikil grein í Bandaríkjunum og veltir til dæmis 15 milljörðum dollara á ári í Texas. Bara með því að kaupa sér eina geit eða kúaræksni getur venjulegt fólk nælt sér í skattaafslátt. Slíkt vakir þó ekki fyrir nautgripaþjófum. Þeir fara með þýfi sitt á gripauppboð og selja það þar.

Það er svo enginn hægðarleikur fyrir lögreglu að bera kennsl á stolið naut innan um hundruð eða þúsundir annarra og enn vandast málið þegar komið er í önnur ríki. Rúmlega 6.400 nautum var stolið í Texas í fyrra svona til að gefa einhverja hugmynd um umfang vandans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×