Erlent

Bandarísk fyrirtæki mörg í kröppum dansi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Skilti á borð við þetta verða æ algengari sjón á bandarískum götum.
Skilti á borð við þetta verða æ algengari sjón á bandarískum götum. MYND/Reuters

Verulega er tekið að harðna á dalnum hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Bandaríkjunum, en lánsfé er þar af verulega skornum skammti líkt og annars staðar. Óánægjuraddir hafa verið uppi um að stjórn Baracks Obama hafi dælt hundruðum milljarða dollara í bankana til að halda þeim á floti meðan smáfyrirtæki, mörg hver tengd smásöluverslun og þjónustu, leggi upp laupana hvert á fætur öðru. Obama undirritaði í febrúar lög um 15 milljarða dollara fjárveitingu til smærri rekstraraðila en sú aðstoð virðist ekki hafa skilað sér sem skyldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×