Forseti Íslands ræddi hugsanlega ESB aðildarumsókn við forseta Litháens 7. júlí 2009 11:16 Forsetinn hitti Grybauskaitë nýkjörinn forseta. Litháens. Mynd/ forsetaembættið.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í morgun, þriðjudaginn 7. júlí, fundi með Valdas Adamkus forseta Litháens og nýkjörnum forseta landsins, frú Dalia Grybauskaitë sem tekur við embætti næstkomandi sunnudag. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að á fundi forseta með Adamkus hafi verið rætt um samvinnu ríkjanna tveggja og tengsl Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Þá hafi forsetarnir rætt um áhrif hinnar alþjóðlegu kreppu á efnahagslíf landanna og hvernig brugðist hefði verið við henni með margvíslegum aðgerðum bæði í Litháen og á Íslandi. „Adamkus forseti lýsti áhuga sínum á því að fylgjast með umræðum um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og fjallaði í nokkru um reynslu Litháa á þeim vettvangi. Forseti Íslands taldi mikilvægt að Íslendingar gætu notið góðs af reynslu Adamkus í þeim efnum í forsetatíð hans, en hann hefur sótt alla leiðtogafundi Evrópusambandsins. Þáði hann boð forseta Íslands um að koma á næstu misserum í heimsókn til Íslands og flytja opinberan fyrirlestur í boði forseta," segir í tilkynningunni. Á fundi forseta Íslands með Dalia Grybauskaitë, nýkjörnum forseta Litháens, var einnig vikið að hugsanlegri umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, en Grybauskaitë gegndi um árabil forystustörfum á vettvangi sambandsins sem einn af framkvæmdastjórum þess. Í tilkynningunni kemur fram að Grybauskaitë þekkti vel til íslenskra hagsmuna og sýndi ríkan skilning á málstað Íslendinga. Á báðum fundunum óskaði forseti Íslands Litháum til hamingju með hina glæsilegu þjóðhátíð sem fram fór í gær í tilefni af því að þúsund ár eru frá upphafi þjóðarsögu þeirra.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Sjá meira