Skelfileg mistök í Icesave samningnum 10. júlí 2009 12:52 Ragnar Hall, hæstaréttarlögmaður.
Ragnar Hall, hæstaréttarlögmaður, telur skelfileg mistök hafa verið gerð af hálfu Íslendinga við uppgjör á þrotabúi Landsbankans í Icesave samningunum við Breta og Hollendinga. Ragnar segir að úthlutunin eigi fyrst að ganga upp í kröfur íslenska tryggingasjóðsins áður en sá breski fær nokkuð, því að skuldbinding breska sjóðsins kemur á eftir íslenska sjóðnum. Sá breski greiðir aðeins mismunarfjárhæð á 20.887 evrum, sem Ísland ábyrgist, og þeirri upphæð sem breski sjóðurinn ábyrgist. Sá breski þarf hins vegar ekkert að greiða ef fjárhæðin er lægri en 20.887 evrur. Í frumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán tryggingasjóðsins til að gera upp Icesave-skuldbindingarnar segir meðal annars: „Íslenski tryggingasjóðurinn fær framselda kröfu breska tryggingasjóðsins og hollenska seðlabankans í bú Landsbankans. Erlendu aðilarnir munu síðan sjálfir gera kröfu í búið vegna þess sem umfram er og þeir hafa fjármagnað. Í samningnum er sérstakt ákvæði sem áréttar að sjóðirnir muni njóta jafnræðis þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans, þ.e. fá upp í kröfur sínar í jöfnum hlutföllum, en það er í samræmi vð þá túlkun á gjaldþrotalögunum sem almennt hefur verið uppi." Ragnar telur að þessi útlegging sé alröng og að hún fái með engu móti staðist. Hann kannast ekki við þá lagatúlkun sem hér er haldið fram að hafi almennt tíðkast. Þvert á móti heldur hann því fram að lagaframkvæmdin hafi verið þveröfug. Um það nægir að vísa til þeirra ótalmörgu tilvika þar sem Ábyrgðasjóður launa hefur leyst til sín hluta launakrafna í þrotabú.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira