Fimmtungur Bandaríkjamanna seinn vikulega Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. febrúar 2009 07:16
Einn af hverjum fimm Bandaríkjamönnum mætir of seint til vinnu að minnsta kosti einu sinni í viku. Umferðin er algengasta afsökun þeirra sem mæta of seint til vinnu en annars er að finna alla flóruna í þeim ástæðum sem fólk gaf þegar atvinnumiðlunin Career Builder ræddi við tæplega 3.300 vinnandi menn og konur og spurði hreinlega hvernig þeim gengi að koma sér í vinnuna. Umferðin er eitt en í kjölfarið fylgdi svefnleysi og almenn þreyta, tafir við að koma börnum í skóla eða pössun, tafir eða seinkun í almenningssamgöngukerfum, stórkostleg vandræði við að velja föt fyrir daginn eða stirð samskipti við gæludýr í morgunsárið. Það virðist eiginlega mesta furða að nokkur maður mæti yfir höfuð til vinnu þegar listinn er skoðaður. Auk þess fimmtungs sem kemur seint einu sinni í viku játaði einn af hverjum tíu að koma of seint tvisvar í viku. Niðurstöðurnar gefa til kynna fjölgun tilfella frá því fyrir einu ári og telur Career Builder það ekki góðs viti. Að sjálfsögðu var haldið sérstaklega utan um öfgafyllstu seinkunarástæður en þar var efst á blaði bilað vinstra stefnuljós sem olli því að viðkomandi tók eintómar hægri beygjur og varð því allt of seinn í vinnuna, ef hann komst þá einhvern tímann þangað.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira