Erlent

Útflutningur á rottum stóreykst

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Víetnamskt barn nagar rottu í rólegheitunum. Rottukjöt er kjúklingur Víetnama og þeir segja fátt jafnast á við rottu steikta í hvítlauk og myntu. Kannski þess virði að smakka.
Víetnamskt barn nagar rottu í rólegheitunum. Rottukjöt er kjúklingur Víetnama og þeir segja fátt jafnast á við rottu steikta í hvítlauk og myntu. Kannski þess virði að smakka.

Ótti við svínaflensu og mikil rigningatíð hafa lagst á eitt við að stórauka útflutning á rottum frá Kambódíu til Víetnam. Heljarstórar brúnar rottur þykja herramannsmatur í Víetnam og svínaflensufaraldurinn hefur gert það að verkum að Víetnamar borða nú mun minna svínakjöt þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að flensan komi alls ekki frá svínum. Rigningin hjálpar hins vegar þannig, að rotturnar flýja holur sínar þegar þær fyllast af vatni og æða beint inn í gildrur kambódískra rottuveiðimanna. Yfir 35 tonn af rottukjöti eru flutt daglega frá Kambódíu til Víetnam.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×