Erlent

Réttarhöldum yfir Berlusconi frestað

Forsætisráðherrann Silvio Berlusconi. Mynd/AFP
Forsætisráðherrann Silvio Berlusconi. Mynd/AFP
Réttarhöldum yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið frestað fram í janúar. Til stóð að hann myndi mæta fyrir dóm í nóvember vegna áskana um stórfelld skattsvik í tengslum við fjölmiðlafyrirtæki hans, Mediaset.

Í október kvað stjórnlagadómstóll Ítalíu upp þann úrskurð að

lög sem tryggðu Berlusconi friðhelgi fyrir dómstólum brytu í bága við stjórnarskrá landsins. Úrskurður stjórnlagadómstólsins gerði það að verkum að saksóknarar gætu haldið áfram dómsmálum sem höfðuð voru á hendur forsætisráðherranum áður en lögin voru sett.

Annað dómsmál vofir yfir Berlusconi sem sagður er hafa mútað breskum lögfræðingi fyrir 12 árum til að segja ósatt í máli sem stóð yfir gegn honum vegna spillingarákæru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×