Allardyce ætlar að fá leikmenn fljótt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. janúar 2009 14:18 Sam Allardyce, stjóri Blackburn. Nordic Photos / Getty Images
Sam Allardyce ætlar sér að styrkja leikmannahóp Blackburn sem allra fyrst til að takast á við baráttuna í ensku úrvalsdeildinni sem er framundan. Allardyce tók við liði Blackburn í síðasta mánuði og hefur ekki farið leynt með áætlanir sínar um að styrkja leikmannahópinn nú í janúar. Sergio Peter, leikmaður Blackburn, er sagður á leið til Sparta Prag í Tékklandi og þá er félagið sagt hafa áhuga á El-Hadji Diouf, leikmanni Sunderland. „Ég á von á því að fá nýjan leikmann sem allra fyrst," sagði Allardyce í samtali við heimasíðu Blackburn. „Ég hef fyrst og fremst einbeitt mér að því að bera kennsl á þá leikmenn sem við viljum fá í samráði við formann félagsins." Hann segist ætla að halda sínum bestum leikmönnum, þeirra á meðal Roque Santa Cruz sem hefur verið orðaður við Manchester City. „Þeir leikmenn sem við erum með eru nægilega góðir til að koma okkur úr þeim vandræðum sem við erum í," sagði Allardyce. „En hvaða stjóri sem er myndi vilja fá leikmann sem myndi koma til með að bæta leikmannahópinn." „Ef okkur tækist að gera það myndi það virka sem mikil lyftistöng fyrir liðið allt."
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira