Bin Laden sótti um starf umsjónarmanns eyjaparadísar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. febrúar 2009 07:53 Osama bin Laden. Sagðist í umsókn meðal annars vera vanur sendnum svæðum.
Yfir 11.000 manns sóttu um stöðu umsjónarmanns ástralskrar paradísareyjar, þar á meðal Osama bin Laden. Þeir eru sennilega ófáir sem gætu vel hugsað sér að starfa við ráðsmennsku á Hamilton-eyjunni úti við hið tilkomumikla Great Barrier-rif sem er stærsta vistkerfi kóralla í heiminum. Starfsfólki ferðaskrifstofunnar Tourism Queensland kom því ekki mjög á óvart að fá yfir 11.000 umsóknir um þetta draumastarf sem auglýst var undir titlinum besta starf í heimi. Þeim kom hins vegar meira á óvart að meðal umsækjenda reyndist Osama nokkur bin Laden sem að auki hafði lagt fram nokkuð metnaðarfulla umsókn í myndbandsformi. Myndbandið er um 30 sekúndur og sýnir al-Qaeda-leiðtogann alræmda flytja ávarp. Ný hljóðritun hefur þó verið lögð yfir hina upprunalegu og greinir önnur rödd þar frá helstu kostum umsækjandans, til dæmis þeim að hann eigi auðvelt með samskipti, sé vanur að hafast við á sendnum svæðum og geti skipulagt stórviðburði. Þótt ótrúlegt megi virðast náði umsóknin ekki inn í þann hóp sem ákveðið var að boða í viðtal og úrskurðuðu yfirmenn Tourism Queensland innihald hennar óviðeigandi. Starfið er raunverulega í boði en tilgangur auglýsingarinnar er þó öðrum þræði að lokka gesti til Hamilton-eyjar.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira