Erlent

Þriggja enn saknað eftir að hús hrundi í Köln

Frá Köln.
Frá Köln. MYND/AP

Þriggja er enn saknað eftir að borgarskjalasafnið í Köln í Þýskalandi hrundi óvænt til grunna í gær. Tvö samliggjandi hús hrundu einnig að hluta þegar sex hæða skjalasafnsbyggingin féll á þau. Fjölmargir voru í húsunum þegar þau hrundu og tókst langflestum að komast út af sjálfsdáðum.

Grunur leikur á að hrunið tengist framkvæmdum við neðanjarðarlestargöng sem liggja undir húsunum en framkvæmdum við göngin lauk þó fyrir ári. Búið er að rýma öll hús í næsta nágrenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×