Árni Þór: Væla yfir því að fá ekki að borða

Hart var tekist á um skipulag þingstarfanna á Alþingi í gær þegar annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var haldið áfram. Hálftíma hlé var gert klukkan sjö, sem margir þingmenn notuðu til þess að nærast enda höfðu þeir kvartað nokkuð yfir skorti á matarhléi.Þegar fundurinn hófst á nýjan leik gagnrýndu þingmenn stjórnarandstöðunnar að þingfundi yrði haldið áfram án þess að fyrir því væri samkomulag milli þingflokka og án þess að slík tillaga hefði verið borin upp og samþykkt sérstaklega af þeim þingmönnum sem viðstaddir voru umræðuna. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur. Að lokum frestaði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, þingfundi um tíu leytið en Alþingi kemur næst saman í fyrramálið.
Árni og Þorgerður voru gestir í þátti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í fyrr í dag. Árni sagði þingmenn stjórnarandstöðunnar kvarta og væla yfir því að þeir væru svangir og fái ekki að borða. „Ég veit ekki eiginlega ekki hvað þau héldu að þau væru að fara að gera þegar þau voru kosin í vor," sagði Árni. Þætti væri einfaldlega skrípalegur.
Þorgerði hugnaðist þau orð ekki. „Hér fer Árni Þór mjög mikinn og reynir að vera kjaftfor og rosa brattur karl." Staðreynd málsins væri sú að þingmenn stjórnarandstöðunnar fái engin svör frá ráðherrum og stjórnarliðum.
Þá sagðist Þorgerður undrast að forseti Alþingis hafi í umræðum í gær ákveðið að breyta þingsköpum svo að hægt væri að halda kvöldfund. Þetta hafi verið gert til að þóknast framkvæmdavaldinu.
Tengdar fréttir

Þingfundur í dag
Þingfundur hefst innan stundar á Alþingi þar sem annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna verður fram haldið, en ekki tókst að ljúka henni í gærkvöld. Sex verða á mælendaskrá í upphafi fundar.

Þvertaka fyrir málþóf
Fullkomin óvissa ríkir um hvenær fjárlög og skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar koma á dagskrá Alþingis vegna togstreitu stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar um Icesave. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa talað um Icesave fyrir hálftómum sal í rúmlega þrjátíu klukkustundir.

Ræddu um skipulag þingfundar í 49 mínútur
Þingmenn ræddu í 49 mínútur við upphaf þingfundar í dag hvort að fram ætti að fara atkvæðagreiðsla um það hvort ræða ætti Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar fram á kvöld. Þráinn Bertelsson, þingmaður utan flokka, sagði umræðuna fyrir neðan virðingu Alþingis.

Siv: Icesave hefur ekkert með ESB að gera
„Ég held að ESB hafi ekkert þetta mál að gera en ég heyri að það eru margir sem vilja tengja þetta saman. Sérstaklega ESB andstæðingar,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag, en annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið í morgun. Þingmaðurinn sagðist ennfremur ekki eiga von á því að Icesave málið komi til með að trufla umsóknarferlið.

Birgir: Ólöglegur þingfundur
Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var frestað á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur.

Kvörtuðu undan fjarveru stjórnarliða
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu alvarlegar athugasemdir við fjarveru ráðherra og stjórnarliða í umræðum um Icesave í upphafi þingfundar í dag og hvort að ræða eigi um málið á kvöldfundi. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði ríkisstjórnina hafa komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir því að greidd yrði atkvæði með nafnakalli um hvort að ræða ætti málið fram á kvöld.

Icesave tefur afgreiðslu skattamála
Þingfundi lauk á öðrum tímanum í nótt og var þá umræðu um Icesave-frumvarpið frestað en henni verður fram haldið í dag. Fyrir lok þingfundar var atkvæðagreiðsla um dagskrártillögu frá stjórnarandstöðuflokkunum um að dagskrá dagsins í dag yrði með þeim hætti að fyrst yrðu skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar tekin til umræðu auk annarar umræðu um frumvarp til fjáraukalaga. Síðan yrði hafist handa við að ræða icesave málið.

Boða kvöldfundi en mæta ekki sjálfir
Tuttugu og fjórir þingmenn létu að sér kveða í heitum umræðum við upphaf þingfundar þar sem stjórnarandstaðan mótmælti því að halda ætti kvöldfund í þinginu til að ræða stjórnarfrumvarp um ríkisábyrgð.

„Ég er svöng"
Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið á Alþingi í morgun. Þegar leið á umræðuna hvatti formaður Hreyfingarinnar forseta Alþingis til þess að gera matarhlé þar sem hún væri svöng. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði að um réttlætismál væri að ræða. Þingmenn ættu að fá matarhlé.

Áhersla lögð á að klára Icesave fyrir mánaðamót
Greiðsluskylda Tryggingasjóðs innstæðueigenda vegna Icesave varð virk fyrir rúmum mánuði og segir fjármálaráðherra mikilvægt að klára afgreiðslu Icesave í þessum mánuði. Ekki sér hins vegar fyrir endann á ræðum stjórnarandstöðunnar um málið.

Frostavetur í atvinnuuppbyggingu verði Icesave-frumvarp ekki afgreitt
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að ýmislegt sem andstæðingar Icesave-frumvarps ríkisstjórnarinnar halda fram gangi fram af sér.

Birkir J. taldi sig niðurlægðan
Önnur umræða um Icesave-málið, sem framhaldið var á þingi í gær, gekk treglega. Réði óánægja stjórnarandstæðinga með fjarveru stjórnarliða mestu um en lengst af voru stjórnarandstæðingar einir í þingsalnum. Margsinnis voru gerðar athugasemdir við fjarveruna, lagt til að þingfundi yrði frestað og önnur mál tekin á dagskrá.