Neytendasamtökin gagnrýna siðlausa markaðssetningu bankanna 7. júlí 2009 12:09 Jóhannes Gunnarsson er formaður Neytendasamtakanna. Mynd/ GVA.
Neytendasamtökin gagnrýna harðlega siðlausa markaðssetningu bankanna í góðærinu þar sem námsmenn voru jafnvel hvattir til að kaupa gallabuxur upp á krít. Þau segja umburðarlyndið sem Íslendingar sýndu bönkunum óskiljanlegt. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Neytendasamtakanna í dag. Þar er farið yfir markaðssetningu bankanna í góðærinu. Rifjað er upp að Búnaðarbankinn hafi markað upphafið að ágengri markaðssetningu bankanna til námsmanna með auglýsingaherferð árið 2003. Þá hafi birst auglýsingin Trommusett á yfirdrætti þar sem sjá mátti framhaldsskólanema sem notaði yfirdrátt til að kaupa trommusett. Fleiri slíkar auglýsingar hafi birst þar sem glaðbeitt ungmenni höfðu keypt tölvu með tölvukaupaláni, gallabuxur á kreditkortið og aðrar neysluvörur, með þeim skilaboðum að eðlilegt væri að námsmenn tækju lán fyrir neysluvörum, útskriftarferðum, bílum og námi með tilheyrandi kostnaði í stað þess að bíða þar til efni og aðstæður leyfðu kaupin. Þá gagnrýna Neytendasamtökin skólayfirvöld fyrir að hafa hleypt bönkum og fjarskiptafyrirtækjum óáreittum inn í framhaldsskóla og fjölmiðla fyrir jákvæðan fréttaflutning úr viðskiptalífinu þar sem varla hafi liðið sá fréttatími að ekki væri sagt frá landvinningum íslenskra kauphéðna erlendis. Þá er rifjað upp að Neytendasamtökin hafi hvatt Kaupþing til að hætta sölumennsku víða á opinberum stöðum, eftir að samtökunum bárust kvartanir um að sölumenn bankans hefðu verið á vappi í kirkjugörðum til að fá ungmenni í unglingavinnunni til að skrifa undir flókna og bindandi samninga um séreignalífeyrissparnað. Nú er öldin önnur, að mati Neytendasamtakanna, en dapurlegt sé að þjóðargjaldþrot hafi þurft til að breyta áherslum í íslensku þjóðlífi.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira